Prófíll

  • Nafn: Eydís Stefanía Kristjánsdóttir
  • Staður: Akureyri
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi. Vinn í úra og skartgripabúð með skólanum.
  • Hjúskaparstaða: Frátekin
  • Um mig: Ég er úr Njarðvík :) Er útskrifuð úr Menntaskólanum á Akureyri árið 2007 og er nú nemi í Háskólanum á Akureyri að læra leikskólakennarafræði! Ég æfi körfubolta með Þór.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hver verður fyrst í vinahópnum að verða ólétt?

Atburðarteljari

Atburðarteljari

Leit

Klukkan

Leikur dagsins

Djamm stelpur?

30. júlí 2006 klukkan 23:27
Jæja krakkar, hvað er að frétta?

Lífið gengur sinn vana gang, sofa, borða, vinna, horfa á sjónvarpið og djamm í sturtunni. Glottandi

úff það eru erfiðar vikur framundan í vinnunni, versló :/ vinn kvöldvakt frá fimmtudegi til sunnudags og svo dagvakt frá mánudegi til föstudags, svo kemur hið langþráða helgarfrí Hlæjandi get ekki beðið sko!

Ég stefni á djamm hérna á föstudaginn eftir vinnu með Höllu minni Hlæjandi eru ekki einhverjir til í Sjallann? Kristbjörg? Petra? Rakel? Heiða? Einhver? Ullandi

Fleyg orð úr vinnunni: Ég hef sko bara sofið hjá fjórum stelpum! hehe Svalur

Eydís Stefanía Kristjánsdóttir
Engin athugasemd

Útskriftaferð? Ekki útskriftaferð?

26. júlí 2006 klukkan 16:20
Hæ,
Í gær var síðasti dagurinn til þess að borga útskriftaferðina og ég gerði það ekki :/ ég get bara engann veginn ákveðið hvort ég eigi að fara!! Fimm tíma flug í flugvél frá Búlgarísku flugfélagi gerir mig dauðhrædda, ég þori ekki!

Gaman að segja frá því að ég fer einhvertíman á næstunni þegar ég er í frí að prufa að vinna í úrabúðinni á Glerártorgi, en ég verð að vinna þar í vetur með skólanum :) ég hlakkar bara til!

Ég get ekki sagt annað en að ég sé farin að hlakka til að byrja aftur í skólanum, að fá Svövu og allar vinkounur mínar aftur hingað til mín! Nema það ég á öruglega ekki eftir að lifa veturinn af ef ég fer ekki í útskriftaferðina og það verður talað um hana ALLAN veturinn!
Get samt ekki beðið eftir að vera ógeðslega leiðinleg við busana okkar..haha!

Shit við útskrifumst eftir eitt ár! Hvað eigum við að gera eftir það? Þá verð ég ein hér á Akureyri án ykkar stelpur í mörg ár! :(
Ég ætla að reyna að draga Pétur með mér suður til ykkar 11. ágúst! :)

Hitti Gittu á sunnudaginn, það var gaman :)
Eydís Stefanía Kristjánsdóttir
8 athugasemdir

veik :(

22. júlí 2006 klukkan 18:19
hæ,
Er ekki bara stranglega bannað að vera veikur á sumrin? Ég er búin að vera með hita núna í 5 daga, en þar sem ég er svo treg er ég búin að mæta í vinnu alla þessa daga, dæli bara i verkjatöflum og skelli mér í vinnu! Fór líka í staffaparty í gær og við vorum úti á palli og mér var svo kalt þannig að núna er ég að deyja úr kvefi!

Já fór semsagt á djammið í gær, bara mjög gaman! Hey Svava ég er að vinna með bróður hans Andra sem var að reyna við þig! Andri sagði samt að þú hafir verið að reyna við hann, en hann sagði það bara því kærastan hans stóð við hliðin á honum :Þ Róleg samt ég gerði þig ekki að fífli! hehe blabla...

Stelpur mínar farið að koma í heimsókn til mín ég er farin að sakna ykkar, það er svo langt síðan ég hef séð ykkur!! :(
Eydís Stefanía Kristjánsdóttir
3 athugasemdir

Allt og ekkert...

18. júlí 2006 klukkan 02:46
Dísús ég hef aldrei neitt gáfulegt að segja hérna....

Var að horfa á síðasta þáttinn af Grey´s Anatomy, shit sko það verður að koma önnur séría þetta er alltof spennandi.

Ég gerði mér lítið fyrir um daginn og keypti mér hjól :) pabbi hans Péturs keypti sér líka eitt og við Pétur ætlum að reyna að vera duglega að fara út að hjóla. Ég var búin að gleyma því hvað það er geggjað gaman að hjóla!

Annars er nú ekki mikið að frétta, er bara alltaf að vinna, sem er svo sem ágætt. Mér líkar bara vel að vinna á Olís er að vinna með mjög fínu fólki og það er bara alltaf stuð hjá okkur :Þ

er ekki eitthvað að frétta af ykkur?? Ég er ekki búin að heyra í bestu vinkonum mínum í langan tíma!!
Eydís Stefanía Kristjánsdóttir
5 athugasemdir

Óska eftir djammfélaga!

13. júlí 2006 klukkan 03:25
Jæja,
Ég fór heim um helgina með Pétri. Mjög fínt, hitti samt bara mömmu, pabbi og Þorsteinn fóru í veiðiferðalag. Hitti samt líka Ásthildi mína og Önnu mína :)
Ég sótti allt sem mamma keypti handa mér úti í Danmörku, hún keypti handa mér 20 svarta og 20 ávaxta Lange Jan :) Gaman!
Fórum líka á Selfoss að kíkja á Karvel, alltaf jafn sætur litla dúllan :)
Karvel

Heiða, Petra og Kristbjörg nenniði að djamma með mér ekki núna um næstu helgi heldur helgina eftir það? mig vantar að komast á smá djamm!!
Eydís Stefanía Kristjánsdóttir
6 athugasemdir

vinna, vinna, vinna

09. júlí 2006 klukkan 21:17
sæl veri þið :Þ Hvað segiði?
Mín bara búin að vera að vinna, en fæ tveggja daga frí núna á þriðjudaginn og miðvikudaginn og mig langar að kíkja heim enn við erum ekkert búin að ákveða....

Mamma, pabbi og Þorsteinn komu heim frá Danmörku í gær og mig langar að fara heim og ná í það sem mamma verslaði fyrir mig, það verður nú eikkað skrautlegt! Mamma hefur aldrei á minni æfi (nema þegar ég var lítil) valið föt á mig! Ég hef alltaf valið mér þau sjálf.
Mamma skemmti sér alveg roalega vel úti, sérstaklega í legolandi :Þ og henni langaði bara að vera lengur! og þar sem ég sé svo eftir því að hafa ekki farið með .eim þá stakk ég upp á því að þau færu bara aftur og tækju mig með, henni leyst nú ekkert alltof vel á að fara aftur í sumar þar sem þau eyddu svo miklu úti að þau voru bara orðin blönk! :(

æjj það er nú eitthvað svo lítið að frétta af mér. Nýbúin í klippingu tók slatta af hárinu :/

Njarðvíkur stelpur sjáumst KANNSKI heima á morgun ;)
Eydís Stefanía Kristjánsdóttir
4 athugasemdir

Flóð...

04. júlí 2006 klukkan 15:41
hæ,
fór heim um helgina. Það var gaman! Ákvað það bara allt í einu klukkan hálf sex á föstudaginn að við skildum nú skella okkur heim fyrst að ég var nú í helgafríi og Pétur í sumarfríi. Þannig að við komum bara heim seint á föstudeginum og fórum bara fljótlega að sofa.
Á laugardeginum skutlaði ég svo mömmu og pabba og Þorsteini upp á flugvöll en þau voru að fara til Danmerkur til Tollu frænku, án mín :( Svo fórum við Pétur bara á Selfoss að heimsækja systur hans og nýfæddan son hennar :) algjör dúlla!
Á sunnudaginn var svo verslað fyrir 40þúsund kall :/ vúps!og hitt hana Höllu mína, allar hinar stelpurnar voru í ferðalagi!

Það er nú víst búið að vera eikkað flóð á Sunny beach og þar í nágrenni! erum við að fara??
Eydís Stefanía Kristjánsdóttir
Engin athugasemd

ái...

26. júní 2006 klukkan 23:59
Klukkan 6 í morgun vaknaði ég við það að ég var lamin í andlitið, beint í nefið! Viðbjóðslega vont og ekkert smá óþægilegt að vakna við það að vera lamin. En Pétur þurfti eikkað svo mikið að hreyfa sig og það endaði með þessu!

Ég er búin að fá 10kall frá Landsbankanum og ég er ekkert búin að borga ferðina....humm?

Ekkert meira að frétta af mér, ég var næstum því farin með mömmu og pabba til Danmerkur, en þau eru að fara næstu helgi, pabbi ætlaði að bjóða mér og Pétri...en við erum ekki að fara með Fýldur 

Hver vill koma með mér í helgarferð til Glasgow að versla?
Eydís Stefanía Kristjánsdóttir
7 athugasemdir

.........

20. júní 2006 klukkan 03:01
hæ, hvað segiði gott?

Ég segi ekki neitt, er bara að vinna og sonna! :Þ
Eydís Stefanía Kristjánsdóttir
9 athugasemdir

Sögu snillingur!

13. júní 2006 klukkan 16:12
Ég er bara orðin sögu snillingur!! :)

Ég féll tvisvar í sögu í 2 bekk en núna á fyrri önninni fékk ég 7 og núna á vorönn fékk ég 8! Geri aðrir betur sko! :Þ

Dreibbinn loksins komin :) þá get ég loksins farið að borga mínar skuldir...

En já...
Eydís Stefanía Kristjánsdóttir
7 athugasemdir