Atvinna: Nemi. Vinn í úra og skartgripabúð með skólanum.
Hjúskaparstaða: Frátekin
Um mig: Ég er úr Njarðvík :) Er útskrifuð úr Menntaskólanum á Akureyri árið 2007 og er nú nemi í Háskólanum á Akureyri að læra leikskólakennarafræði! Ég æfi körfubolta með Þór.
Gleðilegt ár og takk fyrir allar afmæliskveðjurnar í gær :)
Núna eru jólin búin. Þau voru alveg ágætt, það var að vísu unnið svoldið mikið þannig að maður var nú svoldið þreyttur og þess vegna fóru jólin eiginlega bara í það að sofa og horfa á myndir. Var að vinna á hverjum degi eftir að ég kláraði prófin 15. des og náttúrulega brjálað að gera eins og venjulega um jólin. Aðfangadagur var fín, góður matur og fullt af gjöfum. Fengum þó mest pening þar sem að flestir vissu að við værum að safna okkur fyrir Kitchen aid hrærivél. Fengum alveg 40þúsund í peningum sem fóru upp í hrærivélina sem var keypt í dag :)
Áramótin voru líka mjög fín en við vorum í Njarðvík yfir áramótin. Fórum suður 30. des og komum aftur norður í gær, afmælisdeginum eyddi ég semsagt í bíl. Ásthildur fékk að vera hjá okkur á áramótunum, sótti hana um hálf fimm og hún gisti hjá okkur um nóttina. Fórum saman á brennu og skutum svo smá upp um kvöldið. Það var MIKLU minna skotið upp núna heldur en áður.
Hitti svo stelpurnar mínar 1. jan, borðuðum saman og rifjuðum upp gamla tíma :) Gaman að hitta þær :)
Fékk svo helling af afmælisgjöfum. Takk fyrir það. Fékk til dæmis 20 þúsund í viðbót upp í hrærivélina þannig að ég þurfti bara að borga um 10 þús upp úr mínum eigin vasa :) Mjög næs hehe
Systir hans Péturs kom norður 1.jan þegar við vorum fyrir sunnann og fór svo aftur í morgun þannig að við rétt náðum aðeins að hitta hana í gærkvöldi.
Er að fara að vinna á morgun, smá fundur upp í skóla á mánudaginn og svo er það bara vettvangsnám á þriðjudaginn :) Hlakka mjög mikið til en er samt líka svolítið stressuð :/ við eigum að vera með einhver verkefni fyrir börnin og svona og ég hef náttúrulega aldrei unnið á leikskóla þannig að ég á mjög erfitt með að fá einhverjar góðar hugmyndir :/ en þetta reddast á öruglega bara eftir að vera mjög gaman :)
Tímin er svo fljótur að líða, ég er bara orðin 22 ára og hálfnuð með námið mitt! úfff langt í næsta afmælisdag hehe
loksins er í búin í þessim tvem prófum sem ég fór í og er núna hálfuð með námið mitt :) Var búin 15. des, var að vinna í próftíðinni en er núna þegar hún er búin byrjuð að vinna á fullu! Það er ekki komun nein einkunn úr prófunum, ekki einu sinni búin að fá einkunn úr verkefni sem ég skilaði 2. nóvember ekkert smá lélegt!
Byrja í vettvangsnámi í byrjun janúar, get ekki beðið :) Fer á á leikskóla sem er mjög nálægt þar sem ég bý, fínt að geta bara labbað í vinnunna.
Það er svo lítið að frétta af mér eitthvað. 6 dagar til jóla, ég er búin að redda öllum gjöfum og búin að koma þeim suður sem áttu að fara þanngað. Er búin að skrifa öll jólakort, á eftir að koma þreumur þeirra til skila. Fínt að vera bara búin að þessu öllu saman snemma :)
Við verðum semsagt fyrir norðan um jólin og fyrir sunnan um áramótin, eins og venulega!! Verðum eitthvað stutt fyrir sunnan þar sem að það er mjög erfitt fyrir Pétur að fá frí. Einn sem vinnur með honum eða vann með honum var bráðkvattur um daginn þannig að Pétur er núna að sinna hans starfi og sínu þannig að það er brjálað að gera hjá honum greyinu!
Það er ótrúlegt hvað tíminn er fjóltur að líða! þetta eru þriðju jólin sem ég er að vinna í búðinni minni, þriðju jólin sem við Pétur erum saman og ég hálfnuð með háskólanámið! úffff
Fór á Frostrósatónleika um daginn, fórum fyrst saman út að borða háskólaskvísurnar og svo á tónleikana. Þetta voru geðveikir tónleika, ógeðslega gaman og flott! :)
Vilti líka óska henni Maríu til hamingju með afmælið í dag :* Einnig henni Höllu minni sem varð 20. ára 13.des, til hamingju með það elskan mín. Talandi um hvað tíminn er fljótur að líða, þennan sama dag voru 4 ár síðan amma mín dó :(
Jæja æjj það er alveg fullt búið að vera að gerast en ég nenni bara ekki að skrifa meir.
Hæhæ, Alttaf jafn lítið að frétta af mér. Það er farið að hægjast um í skólanum. Kláruðum listaráfangann um síðustu helgi með frábæri lokasýningu þar sem við fléttuðum saman frumsamið lag, hljóðfæraleik, dans og fleira sem við höfum lært í vetur. ooooggg við fengum 10 fyrir þennan áfanga :) Það kláruðust líka tveir leikskólakennaraáfangar í síðustu viku, á að vísu eftir að fara í próf úr öðrum. Þannig að nú er ég ennþá minna í skólanum bara eftir hádegi á mánudögum og þriðjudögum í þrjá og tvo tíma í senn. Þannig að mín hengur bara heima allann daginn á facebook :Þ hehe
Leikur hjá okkur á morgun gegn Skallagrím. Fyrsti leikurinn sem ég get verið með í :) okkur er boðið í skírn hjá vini hans Péturs á sama tíma, við mætum þá bara aðeins og seint. Það er búið að nefna litla drenginn Birgir Húna.
Eftir lokasýninguna í listaráfanganum sem við kláruðum síðustu helgi fórum við allar út að borða og á svona Kabarett inn í Eyjafjarðasveit. Mjög gaman að gera eitthvað allar saman og fagna því að þessi áfangi sé búinn.
Við Pétur erum búin að vera ansi dugleg að kaupa jólagjafir :) erum búin að kaupa alveg slatta en það er samt ennþá alveg fullt eftir. Ég er farin að hlakka svoldið til jólanna, veit ekki afhverju. Við Kristín, María og Anna Lauga erum búnar að kaupa okkur miða á Frostrósar tónleikana sem verða hérna í Hölinni á Akureyri 12.des! Hlakka mikið til :)
Jæja ég man nú ekki eftir neinu fleira í bili allavega....hafið það gott dúllurnar mínar :Þ
Jæja alltof langt síðan ég skrifaði síðast :/ Það er bara aftur komin skóla helgi :( ekki gaman! Allt of langir dagar, og það bætist við að við þurfum að æfa fyrir lokaverkefnið eftir tímana! Við semsagt eigum að sýna lokaverkefni í þessum áfanga (tónlistar áfangi) laugardaginn 8 nóvember og það á að samanstanda af tónlist og dans og við þurfum að ákveða hvað við ætlum að gera og æfa okkur. Það eru sko tveir fjarnemar í hópnum þannig að við höfum bara þessa helgi núna og næstu skólahelgi! En þetta á bara eftir að verða gaman held ég :)
Stelpurnar mínar fara suður á morgun að keppa tvo leiki, við Njarðvík og Skallagrím! Ég kemst ekki :( er í skólanum! Er líka að fara að vinna, eini laugardagurinn sem ég fæ í þessum mánuði. Mér finnst það geggjað leiðinlegt :( Því að næsta suðurferð er svo þarna helgina 8 nóvember og ég auðvitað í skólanum! Það eru sko bara þessir fjórir leikir, tvær helgar úti og einn heimaleikur fyrir áramót, sökkar!
Brjálað að gera í skólanum núna, helling af ritgerðum! Ég er búin að vera að drepast úr leti og ekki neinnt að gera neitt, en þetta reddast :)
Stefnan er tekin á að fara suður fyrstu helgina í nóvember :) Kíkja aðeins á foreldrana og vinina! Hlakka mikið til!
Hún Kristín mín átti afmæli síðustu helgi, 24 ára kjellinginn en hún hélt upp á afmælið sitt á laugardinn og þá kíkti maður aðeins niðrí bæ á Kaffi Ak að dansa, mjög gaman :)
Ég nenni ekki að tala um þetta kreppu kjaftaði, þó að ég hafi nú orðið pínu stressuð þarna á tímabili!
Komin kannski tími á blogg, þó að ég hafi ekkert að segja!
Það er lota í skólanum núna um helgina, var semsagt í tónlist og hreyfingu á fimmtudaginn, í gær og í dag. Mjög spes að vera í svona hreyfingu, erum bara að dansa og fíflast. Áttum t.d. að tjá vandamál okkar með dansi :Þ Anna kennara reyndi svo að mana okkur í sjósund í gær niðrá höfn, ég lét nú ekki plata mig og fór bara heim að sofa. Það voru samt tvær sem skelltu sér með henni, þær eru báðar í fjarnámi. Önnur er jafn gömul mömmu minni hehe. Það eru þá tvær lotur eftir ein í október og hin í nóvember og þær hitta akkurat á keppnishelgi fyrir sunnan. Þannig að ég er nú ekki mikið að fara að vera með í körfunni fyrir áramót.
Nú fara verkefnin að raðast inn í skólanum og þá þarf maður að fara að verða duglegur! Er ekki alveg að nenna því, er ekki enn komin í lærugírinn :Þ
Ég hélt matarboð í gær og bauð Önnu Laugu, Kristínu og Rakel í Lasagne og ís í eftirrétt. Var nú ekki mjög formlegt boð þar sem við borðuðum allar fyrir framan sjónvarpið því að endursýningin af Friday night lights var að byrja og það var engin af okkur búin að sjá hann! En við spiluðum svo þegar við vorum búnar að borða, voða gaman!
samkvæmt henni Höllu minni á ég eftir að eignast strák :) Þegar ég var búin að lesa að henni hafi dreymt það dreymdi mig næstu nótt að hún ætti stelpu :) Þannig að ef við erum berdreymar erum við að fara að fjölga okkur bráðlega!! Heheh
Það er bara ekkert framundan hjá manni nema skóli, lærdómur, æfingar og að halda heimili :Þ hehe
Það er alltaf jafn lítið að frétt hérna hjá okkur!
Afi hans Péturs lést í síðustu viku, þannig að það er kistulagning hjá okkur á morgun og jarðaför á föstudaginn!
Skólinn er á fullu núna og það raðast inn verkefni hjá mér. Skiladagurinn á flestum er í október þannig að maður þarf aðeins að skipuleggja sig og reyna að byrja á einhverju sem fyrst.
Karfan er á fullu en það er mánuður í mót, ég verð eitthvað lítið með í leikjum í vetur. Það er skóli á laugardegi einu sinni í mánuði og þarf helst að vinna tvær helgar þannig það er ekki mikill tími til að fara suður og keppa. Veit til dæmis ekkert hvenar ég kem suður næst. Enginn tími!
Stelpurnar mínar verða bara að fara að koma að heimsækja mig! :)
Það var ógeðslegt veður í nótt, svaf hryllilega lítið og sit núna í tíma að deyja úr þreytu! Hata líka þegar Pétur fer frá mér klukkan 6 á morgnana til að fara í vinnu og ég verð alein heima í vonda veðrinu :(
Frí helgi um helgina :) Pétur er líka í fríi á föstudaginn útaf jarðaförinni. Við getum því eytt góðum tíma saman :)
Jæja þetta blogg er nú bara frekar leiðinlegt hjá mér enda ekkert að frétt af okkur!
Ljósanótt búin þetta árið. Fórum suður á föstudaginn klukkan 5, ég var í skólanum til 4 og Pétur að vinna til 4 þannig að þetta var frekar stutt helgi þar sem við fórum aftur norður á sunnudeginum. Við semsagt komum heim í Njarðvík um 23 á föstudeginum og fórum fljótlega bara í rúmið. Ekki mjög góð nótt þar sem ekki var mikið sofið. Ég var svo lengi að sofna og svo voru einhver læti fyrir utan og vesen :/
á laugardeginum var vaknað snemma, Pétur fór í Rvk á körfuboltaleiki en ég og mamma náðum í Ásthildi og kíktum í bæinn :) Hitti Sunnu mína smá, ekki nógu mikið :( Hitti Önnu mína og fór heim til hennar og kíkti á íbúðina en hún býr upp á velli. Við Pétur fengum hjá henni mjög góða skúffuköku :) takk fyrir okkur! Kíkti líka yfir til Svövu en hún býr í næsta stigagangi við Önnu.
Um kvöldið skelltum við Pétur okkur á Langbest upp á velli. Skrítið að koma þanngað, allt svo breytt. Við skelltum okkur svo niðrí bæ. Kíktum á nokkrar sýningar, voða menningaleg hehe. Hitti Höllu niðrí bæ og alla fjölskylduna hennar :) mjög gaman að sjá hvað allir voru hressir! Við hittum svo systur hans Péturs og horðum á flugeldasýninguna með þeim. Ég var orðin svo þreytt eftir daginn að ég nennti ekki að fara heim skipta um föt, mála mig og gera mig fína til að fara í party hjá Svövu þannig að ég fór bara að sofa, var bara alveg búin á þvi! Þannig að ég hitti bryndísi mína ekki neitt :( Þetta er alltaf þannig, það er alltaf einhver sem ég hitti ekki. Það verður bara að hafa þig, hitti hana bara næst :)
Á sunnudaginn sváfum við til hálf 11, mjög gott. Fengum lambakjöt í hádegismatinn hjá mömmu og pabba og drifum okkur svo í Rvk þar sem við horfðum á einn leik. Kíktum svo aðeins í Kringluna og Smáralind, borðuðum og drifum okkur heim.
Núna er bara skóli, skóli, skóli! Vinna næstu helgi og sonna...Nú er ekkert til að hlakka til lengur :( hehe